UMBOÐ – VÖRUR – INNFLUTNINGUR

Ljós frá Agrilight í Hollandi

Sérstaklega ætlað landbúnaði t.d. gripahúsum þar sem háar kröfur eru gerðar til ljósabúnaðar. Lampar sem eru eiturefnaþolnir í öllum stærðum og gerðum.

Hreinsivélar fyrir riðfrítt stál frá Bio-Circle í Þýskalandi

Sérlega ætlaðar til hreinsunar á Tig suðuferli á ryðfríu stáli. Tæki sem eru til í mismunandi útgáfum. Um byltingu er að ræða frá fyrri hreinsunaraðferðum sem hafa til þessa verið framkvæmdar með sýru. Vélarnar nota vökva sem er umhverfisvænn.

Botab Svíþjóð

Brúkranar og talíur af ýmsum gerðum allt eftir óskum kaupenda. Framleiðandi á mjög víðtækum framleiðslulínum á sviði krana t.d. brúkrana, talía o.fl.

Loftsíur frá Dry Air System í Bandaríkjunum

Framleiðandi á loftsíum til notkunar þar sem þarf að vera sérlega vel þurrkað s.s. fyrir plasmavélar og loftstýrðum vélum ýmis konar.

Lyftuborð frá Edmo í Svíðþjóð

Edmo Lift er einn af stæstu framleiðendum á lyftubúnaði í Evrópu. Hvort sem um er að ræða verksmiðjur, sjúkrahús, vöruhús, lagerhúsnæði eða hvers konar aðstæður þar sem lyftubúnaðar er þörf þá má öruggt telja að Edmo Lift hefur lausnina. Mjög breið framleiðslulína með lyftigetu allt frá 200-10000 kg.

Hraðabreyta, mjúkræsa og straumvaka frá Emotron í Svíðjóð

Mjög rótgróið og virt fyrirtæki á sviði hraðabreyta, mjúkræsa, straumvaka og hefur einnig sérhæft sig í framleiðslu stjórnbúnaðar fyrir hvers kyns kranastjórnun.

Spennustilla o.fl. frá Emri í Hollandi

Einn fremsti framleiðandi á spennustillum fyrir rafala. Einnig er fyrirtækið mjög framanlega í því að gera við rafala og mótora. Höfum ávalt á lager allar algengustu tegundir spennustilla frá Emri.

Tenglabúnaður frá Hollandi

Framleiðandi á ýmsum gerðum tenglabúnaðar sérstaklega gúmmítenglum og hulsum af ýmsum gerðum.

Rafbúnaður frá Night Searcher í Bretlandi

Nightsearcher er leiðandi fyrirtæki í færanlegri og endurhlaðanlegri LED lýsingu.

Nightsearcher fjárfestir stöðugt í rannsóknum og þróun háþróaðra lausna með nýsköpun og vöruþróun sem fer fram í  höfuðstöðvum fyrirtækisins.

Síðan 1984 hefur Nightsearcher framleitt og komið með faglegar lausnir sem þeir geta verið stoltir af um allan heim. Þar sem að fyrirtækið hefur verið lengi á markaðnum hefur það mikla sérfræðiþekkingu sem traust fyrirtæki í lýsingarlausnum, býður upp á hágæða vörur og lausnir fyrir margs konar notkun og aðstæður.

Nightsearcher hefur skapað sér viðurkennt orðspor sem hefur gert þeim kleift að vinna með ýmsum aðilum, þar á meðal hernum og strandgæslunni, lögreglu, slökkviliðs- og viðbragðsaðilum, iðn- og byggingariðnfyrirtækjum, bifreiðaðverkstæðum, járnbrautaverktökum, íþrótta- og veitufyrirtækjum svo fátt eitt sé nefnt.

NightSearcher hefur fjárfest í að taka þátt í alþjóðlegum viðbrögðum við áframhaldandi ógn sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Hönnun á vörum eru með þeim tilgangi að styðja við vaxandi eftirspurn eftir sjálfbærum, mengunarlausum og hávaðalausum valkostum. Viðhorf þeirra er „Hugsaðu núll, hugsaðu grænt“ sýnir skuldbindingu þeirra og undirstrikar það hlutverk sem vöruúrval þeirra mun gegna á komandi árum.

NightSearcher auglýsir einnig undir vörumerkjum, NexSun – Professional solar lighting, GenZero Portable, færanlegar endurhlaðanlegar rafhlöður og SafATEX – lýsing til notkunar í hættulegu umhverfi, sperngjuheld ljós.

Nylonhefti, gips/múrtappa o.fl. frá Sapi Selco á Ítalíu

Leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á nylonheftum. Gamalt og rótgróið fyrirtæki stofnað á 1950. Einnig framleiðir fyrirtækið múrtappa, gipsfestingar og margt fleira.

Raflagnaefni frá Scheele Elektrik í Þýskalandi

Tenglakassar og ljósbúnaður úr mjúku en sterku gúmmíefni. Tenglakassar fást bæði fyrir einfasa og þriggja fasa tengla allt frá 42 volta kerfum í 400 volta kerfi eftir ósk kaupandans.

Einnig eru í boði ljós úr gúmmíefni sem hentar t.d útgerðinni afar vel. Þessi ljós eru mjög hentug fyrir lýsingu í tönkum, um borð í skipum o.s.fr.. Þau eru afar vel vatnsvarin og eru með 24 volta peru.

Þéttabankar frá System Electric í Þýskalandi

Rafeining ehf hefur um nokkra ára skeið verið söluaðili System Electric á Íslandi. System Electric var stofnað 1975 of sérhæfir sig í framleiðslu á fasviks leiðréttingarbúnaði fyrir allar tegundir neysluveitna.
Nú hafa allmargir viðskiptavinir bæði til sjós og lands fjárfest í búnaði frá System Electric og hefur búnaðurinn þegar sannað ágæti sitt bæði hvað virkni og gæði búnaðar varðar. Mikillar vandvirkni gætir við val á búnaði í hverju tilfelli og er búnaður ætíð valinn að undangengnum mælingum á hverri veitu fyrir sig. Er það gert til að tryggja sem besta virkni í hverju tilfelli.

Ljósavélar frá Teksan í Tyrklandi

Í boði eru stærðir allt að 3300KVA og geta kaupendur valið ýmsar gerðir véla s.s Perkings, Mitsubishi, Cummins, Volvo o.s.fr.. Vélarnar eru bæði til afgreiðslu með og án hljóðeinangrandi hlífa svo og á vagni sé þess óskað.